KODA Concrete er búið til úr léttum samsettum steypuþiljum og viði að innan. Einangrunarþil úr kísilryki ásamt öðrum byggingarefnum gerir ytra byrðið sterkt og endingargott og innra rýmið hlýtt eða svalt eftir þörfum.
NÁNARI UPPLÝSINGAR UM KODA CONCRETE /PDFHið rúmgóða en þó fyrirferðarlitla 26,2 m2 KODA úr steypu felur í sér opna stofu, svefnsvæði í fullri stærð, sturtuherbergi með salerni, smáeldhús og svalir.
Framhlið hússins samanstendur af glervegg úr fjórföldu gleri með lítilli verönd og steyptu sólskjóli. Inni í húsinu eru olíu- og vaxborin þil úr krosslímdu timbri (CLT) sem skapar íverustað í sátt við umhverfi og menn.
STAFRÆNT OPIÐ HÚS
Mikil náttúruleg birta, dempuð umhverfishljóð, ryk- og ofnæmisvaldasíur, náttúruleg og eiturefnalaus efni, innbyggð LED-lýsing og stýrt CO2-stig stuðla að heilbrigðu lífi, skýrri hugsun og góðum nætursvefni.
